Jóhannes Sigurðsson lögmaður hefur gengið til liðs við BBA//Fjeldco sem ráðgjafi

Jóhannes hefur víðtæka reynslu á sviði lögfræðinnar og snýr nú aftur til stofunnar að loknu starfi sínu sem dómari við Landsrétt þar sem hann hefur starfað frá stofnun dómstólsins árið 2018. Fyrir skipan hans í Landsrétt starfaði hann um árabil sem eigandi og lögmaður hjá Fjeldsted og Blöndal. Stofan sameinaðist síðar BBA Legal og BBA//Fjeldco varð til.

Meðal annarra starfa Jóhannesar má nefna að hann var stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands um langt skeið á sviði skaðabótaréttar, vátryggingaréttar og hlutafélagaréttar. Á árunum 2004 til 2006 var hann prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík og sinnti þar kennslu og rannsóknum á réttarsviðum sem tengdust fjármálaþjónustu. Jóhannes hefur í tengslum við kennslu og rannsóknarstörf sín ritað fjölmargar fræðigreinar á ýmsum réttarsviðum. Þá starfaði hann sem sérfræðingur á sviði fjármálaþjónustu hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel 2001-2004. Hann hefur á sínum ferli starfað sem stjórnandi hjá íslenskum fyrirtækjum sem hafa verið með starfsemi víða um heim og jafnframt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja bæði hér á landi og erlendis.

Jóhannes lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og er með LLM gráðu frá University of Virginia í Bandaríkjunum. Hann öðlaðist héraðsdómsréttindi árið 1988 og hæstaréttarréttindi árið 1993.

IS

EN