Við erum stolt af því að vera ár eftir ár metin leiðandi lögmannstofa á Íslandi en um árabil hefur BBA//Fjeldco verið metin framúrskarandi lögmannstofa á öllum þeim sviðum sem við sérhæfum okkur í. Þetta staðfesta virtustu alþjóðlegu matsfyrirtæki heims, sem sérhæfa sig í mati á lögmannstofum. Þetta eru IFLR1000, The Legal 500 og Chambers and Partners.
Legal 500 er eitt virtasta matsfyrirtæki heims sem sérhæfir sig í úttektum á þjónustu lögmansstofa. Legal 500 gefur árlega út niðurstöður úttektanna þar sem finna má upplýsingar og niðurstöður bæði um lögmannsstofur og einstaka lögmenn.
Í 2023 útgáfu the Legal 500 er BBA//Fjeldco enn og aftur metin sem fyrsta flokks lögmannstofa á öllum starfssviðum stofunnar. Lesa má meira hér.
Chambers and Partners hafa í yfir 30 ár séð um úttektir á helstu lögmannstofum heims. Matið byggir meðal annars á þeim málum sem stofur hafa sinnt hverju sinni ásamt ítarlegum viðtölum við lögmenn og viðskiptavini stofunnar.
Þessar niðurstöður eru afar ánægjulegar þar sem BBA//Fjeldco kappkostar ávallt að veita fyrsta flokks þjónustu og viðhalda þannig sínu góða orðspori.
Þetta er það sem Chambers and Partners hafði um stofuna að segja.