Elínborg Jónsdóttir
Sérsvið
- Persónuvernd
- Upplýsingatækni
- Heilbrigðisréttur
- Heilbrigðistækni
- Málflutningur
Menntun
- CIPP/E vottun
- University of Aberdeen, LL.M., 2015
- Háskólinn í Reykjavík, M.L., 2010
- Háskólinn í Reykjavík, B.A., 2008
Tungumál

Nýleg Mál
BBA//Fjeldco veitti Styrkási hf. lagalega ráðgjöf vegna kaupa á Malbiksstöðinni ehf.
BBA//Fjeldco veitti Styrkási hf. lagalega ráðgjöf vegna kaupa á öllu hlutafé Malbiksstöðvarinnar ehf. ásamt lóðum félagsins á Esjumelum. Hluti kaupverðsins verður greiddur með útgáfu nýrra hluta í Styrkási. . Með kaupunum verður til fimmta kjarnasvið Styrkáss, sem mun auka getu samstæðunnar til uppbyggingar og viðhalds samgönguinnviða. Viðskiptin koma í aðdraganda þess að Styrkás undirbýr skráningu á aðallista Nasdaq Iceland, sem er á dagskrá á næsta ári. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Teymi BBA//Fjeldco samanstóð af þeim Halldóri Karli Halldórssyni, Stefáni Birni Stefánssyni, ásamt Austra Þorsteinssyni, Brynjari Frey Garðarssyni, Elínborgu Jónsdóttur, Karolinu María Krawczuk, Stefni Guðmundssyni og Arnari Heimi Lárussyni.
Við óskum Styrkási til hamingju með þennan áfanga og þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir gott og árangursríkt samstarf.
BBA//Fjeldco veitti lögfræðilega ráðgjöf við sölu á lyfjaheildsölunni Alvogen ehf.
BBA//Fjeldco veitti Alvogen Iceland ehf. lögfræðilega ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé sínu í Alvogen ehf. (Alvogen) til Orbital ehf.. Alvogen Iceland ehf., dótturfélag eignarhaldsfélagsins Aztiq, er eigandi að öllu hlutafé í Alvogen. Félögin eru óháð starfsemi Alvogen Pharma í Bandaríkjunum. Alvogen hóf starfsemi árið 2014 í kjölfar yfirtöku á lyfjafyrirtækinu Portfarma en félagið hefur stækkað mikið síðan og er orðið einn af helstu birgjum apóteka og heilbrigðisstofnana á Íslandi. Starfsemin felur nú í sér innflutning á um 100 lyfjum og markaðssetningu á meira en 200 heilsutengdum vörum og lækningatækjum, þar á meðal innflutningi, markaðssetningu og dreifingu samheitalyfja, lausasölulyfja og frumlyfja, auk dreifingar annarra heilsutengdra vara til helstu heilbrigðisstofnana og apóteka á Íslandi. Orbital ehf. er í eigu Horns V slhf., sérhæfðs sjóðs í rekstri Landsbréfa hf. og Silfurbergs ehf. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.



























.jpg)




.jpg)










.jpg)

